Verkefni sem FKB hefur styrkt eða staðið fyrir:
2011
FKB leggur til við velferðarráðherra að komið verði á laggirnar tilraunaverkefni til þriggja ára sem feli í sér niðurgreiðslu getnaðarvarna til ungs fólks undir 25 ára. Ætlun er svo að á meðan á verkefninu standi verði árangur reglulega metinn með hliðsjón af tíðni fóstureyðinga og kynsjúkdóma. Jafnframt yrði á tímabilinu unnið að bættu aðgengi getnaðarvarna, m.a. í heilsugæslu. Ætlun samtakanna er að fylgja þessari tillögu eftir með áframhaldandi þrýstingi á stjórnvöld og jafnvel samstarfi við ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna.
2010
Smokkurinn má ekki vera neitt feimnismál. forvarnaverkefni sem felst í því að endurvekja smokkaherferð þar sem notast var við þekkta einstaklinga til að kynna smokkinn. „Smokkurinn má ekki vera feimnismál“. Markmiðið er að hvetja til smokkanotkunar og að opna umræðuna um smokkanotkun á landinu. Frumkvöðlar og samstarfsaðilar eru Inga Dóra Pétursdóttir mannfræðingur, Jón Þór Þorleifsson, kvikmyndagerðarmaður og framleiðandi og Frímann Sigurðsson verkefnastjóri í Hinu húsinu og meðstjórnandi í FKB, ásamt Ástráði, forvarnafélagi læknanema.
2008
· SEKS. Samstarfsverkefni með Ástráði og Jafningjafræðslu, Lýðheilsustöð og Landlæknisembætti. Forvarnarátak gegn kynsjúkdómum og hvatning til smokkanotkunar (2008).
2006
· Fræðslubæklingur sem ætlaður er foreldrum og nefnist Samskipti foreldra og barna um kynlíf. Að útgáfunni stóðu Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir (FKB), Lýðheilsustöð, Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar og Landlæknisembættið (2006).
· Fræðslubæklingur fyrir unglinga sem nefnist Kynlíf – unglingar. Að útgáfunni stóðu ásamt Fræðslusamtökum um kynlíf og barneignir (FKB), Lýðheilsustöð, Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar og Landlæknisembættið (2006).
2001
· ,,Ungt fólk og heilbrigt kynlíf” (2001), Sóley S. Bender, Guðbjörg Edda Hermannsdóttir & Sólveig Jóhannsdóttir, FKB.
· Samstarfsverkefni FKB við Samfés og Alnæmissamtökin um fræðslu fyrir félagsmiðstöðvar um kynheilbrigði, alnæmi og smokkanotkun (2001)
· Samstarf við Tótalráðgjöfina hófst 2001 og er enn við lýði. Viðfangsefni um kynlíf og kynheilbrigði er ein af vinsælustu málaflokkunum.
2000
· ,,Neyðargetnaðarvörnin: best varðveitta leydarmál íslenskrar heilbrigðis þjónustu”, (2000) Sóley S. Bender, Ósk Ingvarsdóttir, Þórhildur Líndal og Sigurlaug Hauksdóttir.