Hvað er IPPF ?
Alþjóðlegu samtökin um fjölskylduáætlun (IPPF) voru stofnuð árið 1952 á þriðju alþjóðaráðstefnu um fjölskylduáætlun sem haldin var í Bombay á Indlandi og var þessi stofnun árangur hugprúðrar baráttu kvenna sem voru brautryðjendur fjölskylduáætlana. Við sjáum um og berjumst fyrir heilsu fólks, réttindum og valkostum á öllum sviðum sem snerta kynferðismál, kynferði og barneignir.
Sem stendur sjáum við um ráðgjöf, heilsugæslu á sviði kvensjúkdóma, HIV/eyðni-tengda starfsemi, sjúkdómsgreiningar og meðferð kynsjúkdóma, mæðravernd, og fóstureyðingartengda starfsemi auk annarrar þjónustu á u.þ.b. 40.000 þjónustustöðvum með aðstoð milljóna sjálfboðaliða á okkar vegum.
Við höldum uppi baráttu fyrir því sem við teljum vera mannréttindi að halda kynferðislegri heilsu, traustri mæðravernd, jafnræði kynja og jákvæðu umhverfi gagnvart kynferðismálum.
Loks gerum við fólki kleift að velja og hafna. Að geta valið um fjölda barna sem fólk eignast, valið um öryggi í kynferðismálum, valið um að fá góða læknismeðferð og umönnun.
Fimm upphafsstafir.
Fimm upphafsstafir mynda hluta af ramma um stefnukænsku okkar. Upphafsstafirnir voru innleiddir árið 2004 og sýna þá þætti í starfsemi okkar sem við einblínum á fram til ársins 2009 ef ekki lengur.
Ungt fólk
Við erum að efla skuldbindingar okkar við ungt fólk, skipum því á stall sem kynferðisverur með réttindi til aðgangs að þjónustustarfsemi og getnaðarvörnum. Við vefengjum starfshætti og menningarhefðir sem valda ungu fólki tjóni, og komum fram sem efnahvati fyrir hnattræna æskulýðshreyfingu, sem stefnir að því að breyta afstöðu manna og endurbæta þekkingu stefnumarkandi aðila á sviði löggjafar og stjórnmála, svo og leiðandi aðila í samfélaginu.
HIV/eyðni
Starf okkar á sviði HIV/eyðni sameflir tengslin milli HIV/eyðni og heilbrigði á sviði kynferðismála og barneigna. Núverandi styrkur stofnunar okkar veitir okkur svigrúm til útbreiðslu stefnuáætlana okkar til annarra sviða svo sem eins og varðandi forvarnir og umönnum, meðferð og stuðning. Við störfum að því að fjarlægja þær hindranir sem valda því að fólk er í hættu vegna HIV/eyðni og að því að draga úr fordæmingu og mismunun. Við erum í virku samstarfi við stofnanir sem fjalla um HIV/eyðni.
Fóstureyðing
Við stefnum að því að draga úr fjölda fóstureyðinga, sem eru óöruggar, á heimsvísu. Aðildarfélög okkar hafa einsett sér að auðkenna aðgerðir sem munu auka réttindi konu til aðgengis að fóstureyðingar-tengdri þjónustu, þ.m.t. ráðgjöf og hjúkrun að lokinni eyðingu fóstursins sem og öruggri fóstureyðingarþjónustu.
Aðgengi
Framlag okkar varðandi upplýsingar, menntun og þjónustu er sérstaklega beint að hinum fátæku, að þeim sem njóta ekki fullrar þjónustu, eru utangarðs og að þeim sem búa á svæðum þar sem opinber og einkarekin heilsugæsla er ekki fyrir hendi. Þetta nær m.a. til þeirra sem eru í mestri hættu á þungun án þess að vilji sé fyrir hendi, og vegna óöruggrar fóstureyðingar og HIV/eyðni.
Málflutningur
Við höldum uppi baráttu og málflutningi fyrir því að löggjöf verði endurbætt, að meðvitund verði aukin, og að hindranir fyrir þjónustu verði fjarlægðar. Við erum málsvarar þess að haldið verði fast við markmiðin sem sett voru á alþjóðaráðstefnunni um fólksfjölda og þróun árið 1994 þar sem hvatt var til endurnýjunar á stjórnmálalegum stuðningi og þar sem gjafarar voru hvattir til að fullnægja fjármagnsþörf sem samþykkt hafði verið í því skyni að tryggja almennt aðgengi að þjónustu á sviði kynferðismála og barneigna fyrir árið 2015. Verði þetta ekki gert er það skoðun okkar að Þróunarmarkmið þúsaldarinnar um útrýmingu fátæktar komist ekki í framkvæmd.
What is IPPF?
The International Planned Parenthood Federation (IPPF) was formed in 1952 at the Third International Conference on Planned Parenthood in Bombay, India, as a result of courageous campaigning by women who were pioneers for family planning.
We provide and fight for people’s health, rights and choices in all areas concerning sex, gender and reproduction.
We currently provide around 40,000 service outlets, with the help of our millions of volunteers, for counselling, gynaecological care, HIV/AIDS-related activities, diagnosis and treatment of sexually transmitted infections, mother and child health and abortion-related services, among many others.
We fight for what we see as a human right to enjoy good sexual health, safe maternal health, gender equality and a positive environment towards sexuality.
Finally, we make it possible for people to make choices. Choices about the number of children they have, choices about having safer sex, choices about getting good treatment and care.
The Five A's
The Five A's are part of our strategic framework. Introduced in 2004, they represent the focal points of our work until at least 2009.
Adolescents
We are strengthening our commitment to young people, positioning them as sexual beings with rights to access services and contraceptives. We challenge practices and cultural norms that are harmful to young people, as well as acting as a catalyst for a global youth movement, which aims to change attitudes and improve the knowledge of legal and political policy-makers, and community leaders.
HIV/AIDS
Our work in HIV/AIDS synergizes the connections between HIV/AIDS and sexual and reproductive health. Existing institutional strength allows our expansion into broader programmatic areas, such as prevention and care, treatment, and support. We work to remove the barriers that make people vulnerable to HIV/AIDS, and to reduce stigma and discrimination. We actively collaborate with HIV/AIDS organizations.
Abortion
We aim to reduce the number of abortions worldwide that are unsafe. Our Member Associations are committed to identifying actions that will increase a woman’s right to access abortion-related services, including counselling and post-abortion care, as well as safe abortion services.
Access
Our information, education and service provision reaches out, in particular, to the poor, the under-served, the marginalized and those living where public and private health facilities do not exist. This includes those most at risk of unwanted pregnancy, unsafe abortion and HIV/AIDS.
Advocacy
We campaign and lobby to improve legislation, raise awareness, and remove barriers to services. We advocate commitment to the goals of the 1994 International Conference on Population and Development, calling for renewed political support, and encouraging donors to meet the agreed funding requirements to ensure universal access to sexual and reproductive health services by 2015. Without this, we believe that the Millennium Development Goal of poverty eradication will not be realized.