Markmið2

Markmiðsáætlun FKB


Stuðningsáætlun og framkvæmdaráætlun



Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir





FKB var stofnað árið 1992. Markmið samtakanna hefur verið að vinna að því að fá samfélagið til að viðurkenna jafnan rétt allra til þess að lifa heilbrigðu og ábyrgu kynlífi. Meðal verkefna samtakanna gegnum árin hefur verið útgáfa fræðsluefnis, eins og „ungt fólk og heilbrigt kynlíf“, og að stuðla að betra aðgengi að kynfræðslu og getnaðarvörnum til almennings. Samtökin berjast fyrir kynheilbrigði, heilbrigði á sviði barneigna og auknu aðgengi að getnaðarvörnum og vinna í samstarfi við stjórnvöld um áætlanir og lagasetningar er tengjast kynheilbrigði.




Framtíðaráætlun FKB 2008-2013




Framtíðarsýn 2020




Að öllum sé gert kleift að nýta rétt sinn til fræðslu um kynheilbrigði og þjónustu á því sviði til að geta lifað heilbrigðu kynlífi, þar sem kynlíf er eðlilegur hluti af lífinu, þar sem val er virt og fordómar eru ekki til staðar.




Verkefni 2008-2013




FKB stefnir að því að vera þekkt fyrir sérfræðiþekkingu á öllum sviðum er lúta að kynheilbrigði, barneignum og réttindum því tengdum. FKB er talsmaður réttinda fólks til heilbrigðis kynlífs og skipulögðum barneignum með því að stuðla að ábyrgri hegðun í kynlífi. Sérstaklega er þetta mikilvægt meðal ungs fólks. FKB leggur mikla áherslu á að útrýma kynsjúkdómum og vill stemma stigu við útbreiðslu þeirra. Það sama á við um kynferðisofbeldi, en slíkt ber að uppræta í öllum samfélögum. FKB vill gera lagaákvæði um kynfræðslu virkari til þess að gera ungu fólki kleift að lifa heilbrigðu kynlífi og hafa greiðan aðgang að ódýrum eða ókeypis getnaðarvörnum. Mikilvægt er að styrkja stöðu ungs fólks varðandi kynheilbrigði, barneignir og réttindi tengd því. FKB vill upplýsa almenning um kynheilbrigði og mikilvægi þess, berjast gegn fordómum er varða kynhegðun og berjast fyrir rétti kvenna til þess að hafa aðgang að öruggum og ódýrum eða ókeypis getnaðarvörnum og löglegri fóstureyðingu.








Ungt fólk




Meginmarkmið




Allir unglingar hafa rétt á góðri fræðslu og þjónustu tengdri kynheilbrigði til að gera þeim kleift að lifa heilbrigðu kynlífi.




Markmið 1




Að bæta og styrkja kynfræðslu í skólum, félagsmiðstöðvum unglinga og sérstökum móttökum fyrir ungt fólk á heilsugæslustöðvum.




Áætlun




Að styðja við starfsemi og vinna með mögulegum samstarfs aðilum á vegum sveitarfélaga og samtaka, einkafyrirtækja (t.d. lyfjafyrirtæki), fagfólki sem koma að málaflokknum, löggjafavaldi og fleirum.




· Að auka samstarf við samtök meðal ungs fólks




· Að styrkja jafningjafræðslu í félagsmiðstöðvum unglinga




· Að styðja við og starfa með fagfólki og fræðsluaðilum unglinga (stefna að því að fá meiri og betri kynfræðslu fyrir fólkið sem sér um að koma fræðslunni á framfæri)




· Að auka fræðslu til fagfólks um kynheilbrigði




Markmið 2




Að bæta aðgang ungs fólks að upplýsingum og þjónustu um kynlíf og barneignir. Þróa þarf áfram unglingamóttökur við heilsugæsluna til að tryggja jafnan aðgang alls ungs fólks að upplýsingum sem þau óska eftir á þessu sviði.




Áætlun:




· Stuðla að stofnun unglingamóttaka í þéttbýli sem og á landsbyggðinni




· Stuðla að góðri kynheilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk








Markmið 3




Styrkja rödd ungs fólks hvað varðar réttindi þeirra tengd kynlífi og barneignum




Áætlun:




· Að fá fleira ungt fólk til liðs við FKB




· Að vera málsvari jákvæðra viðhorfa á þörfum ungs fólks vegna fræðslu og upplýsinga um kynlíf,kynheilbrigði og barneignir innan kynheilbrigðis




· Að styðja við samtök ungmenna sem vilja taka þessi mál til umræðu.












HIV/Alnæmi/kynsjúkdómar




Meginmarkmið




Að fækka þeim sem smitast af HIV og öðrum kynsjúkdómum, jafnframt að leitast við að draga úr fordómum vegna HIV/alnæmis með áherslu á að verja réttindi þeirra sem eru smitaðir af HIV/alnæmi




Markmið 1




Að auka þekkingu og skilning almennings á gagnvart HIV smituðum á Íslandi.




Að auka meðvitund almennings um orsakir og afleiðingar kynsjúkdóma




Áætlun:




· Að hvetja til betra aðgengis almennings að upplýsingum um HIV/alnæmi og aðra kynsjúkdóma.




Markmið 2




Að auka fræðslu um tengslin milli kynheilbrigðis og HIV/alnæmis.




Áætlun:




· Að auka fræðslu og bæta þekkingu um réttindi HIV/alnæmis smitaðra til kynlífs og kynheilbrigðis




Markmið 3




Að styðja skuldbindingar Íslands og alþjóðasamfélagsins til að standa vörð um réttindi fólks sem smitað er af HIV/alnæmi




Áætlun:




· Að vinna upplýsingar í samstarfi við stjórnvöld um réttindi og aðstæður HIV smitaðra á Íslandi.








Fóstureyðingar




Meginmarkmið




Að allar konur hafi rétt á og hafi stuðning til að taka sjálfstæða ákvörðun um eigin barneignir, hafi gott aðgengi að getnaðarvörnum og geti þannig stjórnað eigin frjósemi. Að allar konur hafi aðgengi að löglegri fóstureyðingu við öruggar aðstæður.




Markmið 1




Að bæta upplýsingar til almennings um fóstureyðingar og aðgengi kvenna að þeim.




Áætlun:




· Að standa vörð um rétt kvenna til öruggra og löglegra fóstureyðinga.








Markmið 2




Að minnka hlutfall fóstureyðinga hjá ungum konum með aukinni fræðslu og góðu aðgengi að getnaðarvörnum og neyðargetnaðarvörn




Áætlun:




· Að auka aðgengi og framboð á ókeypis/ódýrum getnaðarvörnum




· Að auka aðgengi að upplýsingum um getnaðarvarnir




· Að auka enn frekar aðgengi að neyðargetnaðarvörn








Markmið 3




Að auka framboð á góðri ráðgjöf fyrir og eftir fóstureyðingu, óski konur þess.




Áætlun:




· Að styðja við bætt aðgengi kvenna að ráðgjöf.








Markmið 4




Að styðja sjálfsákvörðunarrétt kvenna til fóstureyðinga




Áætlun




· Að styðja við breytingar á löggjöf þannig að hún styrki enn frekar sjálfsákvörðunarrétt kvenna til fóstureyðinga.








Aðgengi




Meginmarkmið




Að allir hafi jafnan rétt og gott aðgengi að upplýsingum varðandi kynlíf, kynfræðslu og þjónustu tengda kynheilbrigði og barneignum.




Markmið 1




Að bæta og auka aðgengi að góðri kynheilbrigðisþjónustu, sérstaklega á landsbyggðinni




Áætlun:




· Að stuðla að því að sett verði á fót þjónustumiðstöðvar sem sérhæfa sig í kynheilbrigði




· Að stuðla að því að bæta þá þjónustu sem nú þegar er til staðar




· Að bæta aðgengi að ódýrum og/eða ókeypis getnaðarvörnum




· Að stuðla að og koma með tillögur um til ráðamanna um að opnaðar verði unglingamóttökur tengdar heilsugæslustöðvum landsins












Markmið 2




Að stuðla að góðu aðgengi að faglegum upplýsingum um kynheilbrigði




Áætlun:




· Að veita faglega þjónustu með góðum upplýsingum: www.fkb.is (fagleg þjónusta)




· Að hvetja til þess að þær rafrænu upplýsingar sem eru á netinu verði bættar og að almenningur viti hvaðan upplýsingar koma, hvort þær koma frá fagfólki eða fyrirtækjum eða einstaklingum.




Markmið 3




Að hvetja alla til þess að notfæra sér rétt sinn til aðgengis að réttum upplýsingum varðandi kynheilbrigði,kynlíf og þá þjónustu sem völ er á.




Áætlun:




· Að auka vitneskju almennings um réttindi þeirra til góðrar þjónustu á þessu sviði sem og öðrum sviðum heilbrigðisþjónustu.








Samráð




Meginmarkmið




Að stuðla að styrku almenningsáliti með fræðslu og samræðu um mikilvægi kynheilbrigðis á Íslandi og utan þess. Ná pólitískri og fjárhagslegri skuldbindingu og stuðningi fyrir réttindi innan kynheilbrigðis innan lands og utan.




Markmið 1




Að auka þekkingu og skilning stjórnvalda á mikilvægi kynheilbrigðis og réttinum til kynlífs.




Áætlun:




· Að vinna í góðum tengslum við stjórnvöld og stofnanir þeirra sem koma að málaflokknum




· Að vinna með stjórnvöldum að því að koma í framkvæmd verkefnum til að auka þekkingu og skilning á kynheilbrigði og mikilvægi þess.








Markmið 2




Að styrkja og bæta stuðningsnet þeirra er vinna að fræðslu og réttindamálum varðandi kynheilbrigði.




Áætlun:




· Að koma auga á tilvonandi talsmenn í umræðunni um kynheilbrigði meðal þess unga fagfólks sem starfar á heilbrigðisstofnunum og í einkageiranum




· Að koma á jákvæðu sambandi við fjölmiðla til þess að koma þessum málefnum á framfæri








Markmið 3




Að styrkja rödd þeirra er tala fyrir mikilvægi kynheilbrigðis.




Áætlun:




· Að finna mögulega samstarfsmenn og bandamenn




· Að starfa með samtökum sem vinna að svipuðum málefnum




· Að koma á framfæri vitneskju um mikilvægi réttinda til kynheilbrigðis til mögulegra samstarfsaðila( manna).











Stuðningsáætlun




(Supporting Strategies)




Markmið




Að auka mannauð og fjárhagsstuðning samtakanna eins og kostur er




Áætlun




· Að þekkja og virkja fjármagn frá stjórnvöldum, stofnunum og einkaaðilum til okkar starfa




· Að tryggja aðferðafræðina við ráðningu sjálfboðaliða








Ímynd




Markmið 1




Að styrkja ímynd samtakanna




Áætlun




· Að bæta heimasíðuna; www.fkb.is þannig að hún verði mikilvægt úrræði hvað varðar fræðslu um kynheilbrigði




· Að vinna með öðrum samtökum og stofnunum um málefni er varða kynheilbrigði




· Að hvetja til rannsókna innan kynheilbrigðis








Markmið 2




Að styrkja markmiðs- og framkvæmda áætlun samtakanna ásamt því að efla skilvirkt samstarf við aðra aðila sem að þessum málum koma.




Áætlun:




· Að þekkja og koma á samvinnu við viðeigandi samtök sem starfa að svipuðum málefnum á árangursríkan hátt í allri vinnu okkar (t.d. ungt fólk, réttur kvenna, heilbrigðisstarfsfólk, starfsfólk í félagsgeiranum, kennarar, nemendur, fjölmiðlafólk)




· Að auka vitnesku til samtaka, félaga og fyrirtækja um málefni okkar til að klára tímabundin verkefni samtakanna




· Auka skilning stjórnvalda á mikilvægi samtakanna og verkefni þau sem framundan eru.








Hlutverk og verkefni stjórnar




Markmið 1




Að auka virkni og vinnu stjórnar




Áætlun:




· Að skilgreina hlutverk og ábyrgð stjórnarmeðlima




· Að útbúa handbók með vinnureglum fyrir samtökin




· Að skilgreina hlutverk og ábyrgð starfsfólks








Markmið 2




Að búa til áhrifaríkan/gagnlegan ramma sem auðveldar meðlimum miðla starfi í auknum mæli til samtakanna




Áætlun:




· Að hvetja til virkrar þátttöku meðlima í starfsemi samtakanna




· Að kortleggja ákveðin verkefni sem meðlimir samtakanna geta séð um




· Að virkja fleiri meðlimi úr öllum stéttum um allt land sem hafa áhuga á starfi samtakanna












Framkvæmdar áætlun




(Action Plan)




Árið 2008-2009 vonumst við til að:




· Fá fleiri meðlimi í samtökin með fjölbreyttan bakgrunn




· Vinna að því að fá meira fjármagn




· Bæta tengsl okkar við IPPF




· Starfa með öðrum samtökum innan IPPF (eins og NSRR)




· Læra af reynslu annarra samtaka og miðla eigin reynslu




· Auka þjónustu sem FKB styrkir, fræðslu (heimasíðu), verða meira sýnileg




· Vinna í samstarfi við stjórnvöld




· Að starfa með stefnumótandi aðilum




· Auka samstarf við heilbrigðisstofnannir og starfsfólk












Styrkleikar okkar




· Ísland er lítið land, samskipti ættu því að vera auðveld




· Málefnið sem samtökin vinna að er málefni sem kemur öllum við




· FKB er með nýja stjórn, stjórnarmeðlimir hafa mismunandi bakgrunn og veita því samtökunum fjölbreytta styrkleika




Veikleikar okkar

  • Fjármálin
  • Fáir meðlimir
  • Skortur á þátttöku karlmanna
  • Húsnæðislaus
  • Sýnileiki

Í ástands greiningu sem gerð var árið 2007 af stjórn FKB komu í ljós „göt“ í kynheilbrigðis þjónustunni á Íslandi. Næstu fimm árin mun það vera forgangsverkefni samtakanna að hvetja til leiða til að fylla upp í þessi „göt“. Viðkvæmasti hópurinn er ungt fólk og því mun hvatning til opnunnar unglingamóttaka hafa forgang.

Samtökin munu einnig vinna að því að útrýma veikleikum sínum með því að verða sýnilegri gegnum fjölmiðla og heimasíðu.

Skoðanakönnun

Eru getnaðarvarnir of dýrar?




Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir * postbox 886, 121 Reykjavík* fkb@fkb.is *sími: 8926456 * kt. 540793-2049