MARKMIÐSÁÆTLUN FKB
FKB- Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir
FKB var stofnað árið 1992. Markmið samtakanna hefur verið að vinna að því að fá samfélagið til að viðurkenna jafnan rétt allra til þess að lifa heilbrigðu og ábyrgu kynlífi. Meðal verkefna samtakanna gegnum árin hefur verið útgáfa fræðsluefnis, eins og „ungt fólk og heilbrigt kynlíf“, og að stuðla að betra aðgengi að kynfræðslu og getnaðarvörnum til almennings. Samtökin berjast fyrir kynheilbrigði, heilbrigði á sviði barneigna og auknu aðgengi að getnaðarvörnum og vinna í samstarfi við stjórnvöld um áætlanir og lagasetningar er tengjast kynheilbrigði.
Framtíðaráætlun FKB 2008-2013
Framtíðarsýn 2020
Að öllum sé gert kleift að nýta rétt sinn til fræðslu um kynheilbrigði og þjónustu á því sviði til að geta lifað heilbrigðu kynlífi, þar sem kynlíf er eðlilegur hluti af lífinu, þar sem val er virt og fordómar eru ekki til staðar.
Verkefni 2008-2013
FKB stefnir að því að vera þekkt fyrir sérfræðiþekkingu á öllum sviðum er lúta að kynheilbrigði, barneignum og réttindum því tengdum. FKB er talsmaður réttinda fólks til heilbrigðis kynlífs og skipulögðum barneignum með því að stuðla að ábyrgri hegðun í kynlífi. Sérstaklega er þetta mikilvægt meðal ungs fólks. FKB leggur mikla áherslu á að útrýma kynsjúkdómum og vill stemma stigu við útbreiðslu þeirra. Það sama á við um kynferðisofbeldi, en slíkt ber að uppræta í öllum samfélögum. FKB vill gera lagaákvæði um kynfræðslu virkari til þess að gera ungu fólki kleift að lifa heilbrigðu kynlífi og hafa greiðan aðgang að ódýrum eða ókeypis getnaðarvörnum. Mikilvægt er að styrkja stöðu ungs fólks varðandi kynheilbrigði, barneignir og réttindi tengd því. FKB vill upplýsa almenning um kynheilbrigði og mikilvægi þess, berjast gegn fordómum er varða kynhegðun og berjast fyrir rétti kvenna til þess að hafa aðgang að öruggum og ódýrum eða ókeypis getnaðarvörnum og löglegri fóstureyðingu.
Ungt fólk
Meginmarkmið
Allir unglingar hafa rétt á góðri fræðslu og þjónustu tengdri kynheilbrigði til að gera þeim kleift að lifa heilbrigðu kynlífi.
Markmið 1
Að bæta og styrkja kynfræðslu í skólum, félagsmiðstöðvum unglinga og sérstökum móttökum fyrir ungt fólk á heilsugæslustöðvum.
Áætlun
- Að styðja við starfsemi og vinna með mögulegum samstarfs aðilum á vegum sveitarfélaga og samtaka, einkafyrirtækja (t.d. lyfjafyrirtæki), fagfólki sem koma að málaflokknum, löggjafavaldi og fleirum.
- Að auka samstarf við samtök meðal ungs fólks
- Að styrkja jafningjafræðslu í félagsmiðstöðvum unglinga
- Að styðja við og starfa með fagfólki og fræðsluaðilum unglinga (stefna að því að fá meiri og betri kynfræðslu fyrir fólkið sem sér um að koma fræðslunni á framfæri)
- Að auka fræðslu til fagfólks um kynheilbrigði
Markmið 2Að bæta aðgang ungs fólks að upplýsingum og þjónustu um kynlíf og barneignir. Þróa þarf áfram unglingamóttökur við heilsugæsluna til að tryggja jafnan aðgang alls ungs fólks að upplýsingum sem þau óska eftir á þessu sviði.
Áætlun:- Stuðla að stofnun unglingamóttaka í þéttbýli sem og á landsbyggðinni
- Stuðla að góðri kynheilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk
Markmið 3Styrkja rödd ungs fólks hvað varðar réttindi þeirra tengd kynlífi og barneignum
Áætlun:- Að fá fleira ungt fólk til liðs við FKB
- Að vera málsvari jákvæðra viðhorfa á þörfum ungs fólks vegna fræðslu og upplýsinga um kynlíf,kynheilbrigði og barneignir innan kynheilbrigðis
- Að styðja við samtök ungmenna sem vilja taka þessi mál til umræðu.
HIV/Alnæmi/kynsjúkdómarMeginmarkmiðAð fækka þeim sem smitast af HIV og öðrum kynsjúkdómum, jafnframt að leitast við að draga úr fordómum vegna HIV/alnæmis með áherslu á að verja réttindi þeirra sem eru smitaðir af HIV/alnæmi
Markmið 1Að auka þekkingu og skilning almennings á gagnvart HIV smituðum á Íslandi.
Að auka meðvitund almennings um orsakir og afleiðingar kynsjúkdóma
Áætlun:- Að hvetja til betra aðgengis almennings að upplýsingum um HIV/alnæmi og aðra kynsjúkdóma.
Markmið 2Að auka fræðslu um tengslin milli kynheilbrigðis og HIV/alnæmis.
Áætlun:- Að auka fræðslu og bæta þekkingu um réttindi HIV/alnæmis smitaðra til kynlífs og kynheilbrigðis
Markmið 3Að styðja skuldbindingar Íslands og alþjóðasamfélagsins til að standa vörð um réttindi fólks sem smitað er af HIV/alnæmi
Áætlun:- Að vinna upplýsingar í samstarfi við stjórnvöld um réttindi og aðstæður HIV smitaðra á Íslandi.
FóstureyðingarMeginmarkmiðAð allar konur hafi rétt á og hafi stuðning til að taka sjálfstæða ákvörðun um eigin barneignir, hafi gott aðgengi að getnaðarvörnum og geti þannig stjórnað eigin frjósemi. Að allar konur hafi aðgengi að löglegri fóstureyðingu við öruggar aðstæður.
Markmið 1Að bæta upplýsingar til almennings um fóstureyðingar og aðgengi kvenna að þeim.
Áætlun:- Að standa vörð um rétt kvenna til öruggra og löglegra fóstureyðinga.
Markmið 2Að minnka hlutfall fóstureyðinga hjá ungum konum með aukinni fræðslu og góðu aðgengi að getnaðarvörnum og neyðargetnaðarvörn
Áætlun:- Að auka aðgengi og framboð á ókeypis/ódýrum getnaðarvörnum
- Að auka aðgengi að upplýsingum um getnaðarvarnir
- Að auka enn frekar aðgengi að neyðargetnaðarvörn
Markmið 3Að auka framboð á góðri ráðgjöf fyrir og eftir fóstureyðingu, óski konur þess.
Áætlun:- Að styðja við bætt aðgengi kvenna að ráðgjöf.
Markmið 4Að styðja sjálfsákvörðunarrétt kvenna til fóstureyðinga
Áætlun- Að styðja við breytingar á löggjöf þannig að hún styrki enn frekar sjálfsákvörðunarrétt kvenna til fóstureyðinga.
AðgengiMeginmarkmiðAð allir hafi jafnan rétt og gott aðgengi að upplýsingum varðandi kynlíf, kynfræðslu og þjónustu tengda kynheilbrigði og barneignum.
Markmið 1Að bæta og auka aðgengi að góðri kynheilbrigðisþjónustu, sérstaklega á landsbyggðinni
Áætlun:- Að stuðla að því að sett verði á fót þjónustumiðstöðvar sem sérhæfa sig í kynheilbrigði
- Að stuðla að því að bæta þá þjónustu sem nú þegar er til staðar
- Að bæta aðgengi að ódýrum og/eða ókeypis getnaðarvörnum
- Að stuðla að og koma með tillögur um til ráðamanna um að opnaðar verði unglingamóttökur tengdar heilsugæslustöðvum landsins
Markmið 2Að stuðla að góðu aðgengi að faglegum upplýsingum um kynheilbrigði
Áætlun:- Að veita faglega þjónustu með góðum upplýsingum: www.fkb.is (fagleg þjónusta)
- Að hvetja til þess að þær rafrænu upplýsingar sem eru á netinu verði bættar og að almenningur viti hvaðan upplýsingar koma, hvort þær koma frá fagfólki eða fyrirtækjum eða einstaklingum.
Markmið 3Að hvetja alla til þess að notfæra sér rétt sinn til aðgengis að réttum upplýsingum varðandi kynheilbrigði,kynlíf og þá þjónustu sem völ er á.
Áætlun:- Að auka vitneskju almennings um réttindi þeirra til góðrar þjónustu á þessu sviði sem og öðrum sviðum heilbrigðisþjónustu.
Samráð
MeginmarkmiðAð stuðla að styrku almenningsáliti með fræðslu og samræðu um mikilvægi kynheilbrigðis á Íslandi og utan þess. Ná pólitískri og fjárhagslegri skuldbindingu og stuðningi fyrir réttindi innan kynheilbrigðis innan lands og utan.
Markmið 1Að auka þekkingu og skilning stjórnvalda á mikilvægi kynheilbrigðis og réttinum til kynlífs.
Áætlun:- Að vinna í góðum tengslum við stjórnvöld og stofnanir þeirra sem koma að málaflokknum
- Að vinna með stjórnvöldum að því að koma í framkvæmd verkefnum til að auka þekkingu og skilning á kynheilbrigði og mikilvægi þess.
Markmið 2Að styrkja og bæta stuðningsnet þeirra er vinna að fræðslu og réttindamálum varðandi kynheilbrigði.
Áætlun:- Að koma auga á tilvonandi talsmenn í umræðunni um kynheilbrigði meðal þess unga fagfólks sem starfar á heilbrigðisstofnunum og í einkageiranum
- Að koma á jákvæðu sambandi við fjölmiðla til þess að koma þessum málefnum á framfæri
Markmið 3Að styrkja rödd þeirra er tala fyrir mikilvægi kynheilbrigðis.
Áætlun:- Að finna mögulega samstarfsmenn og bandamenn
- Að starfa með samtökum sem vinna að svipuðum málefnum
- Að koma á framfæri vitneskju um mikilvægi réttinda til kynheilbrigðis til mögulegra samstarfsaðila( manna).