Réttindi þín
Árið 1995 samþykkti Alþjóðasambandið um fjölskylduáætlanir ásamt 127 aðildarsamtökum þess stofnsáttmála um kynferðisleg réttindi og réttindi til barneigna sem byggður er á alþjóðlegum mannréttindasamningum. Hér á eftir fylgir yfirlit:
1. Vitna ber í réttinn til lífs til að veita þeim konum vernd sem nú eru í lífshættu vegna þungunar.
2. Vitna ber í réttinn til frelsis og öryggis einstaklingsins til að veita þeim konum vernd sem nú eiga á hættu að kynfæri þeirra verði afskræmd, eða að verða þvingaðar til þungunar, til ófrjósemisaðgerða eða þvingaðar til fóstureyðinga.
3. Vitna ber í réttinn til jafnræðis og til að vera laus undan öllum myndum mismununar í því skyni að vernda rétta allra manna, án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, kynhneigðar, hjúskaparstöðu, fjölskylduhátta, aldurs, tungumáls, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, þjóðernis eða félagslegs uppruna, fátæktar, fæðingar eða annarrar stöðu, til jafnræðis í aðgengi að upplýsingum, uppfræðslu og þjónustu sem tengist persónuþróun og kynferðislegri heilsu og heilsu á sviði barneigna.
4. Vitna ber í réttinn til einkalífs til að vernda rétt allra þjónustuþega á sviði upplýsingagjafar varðandi kynferðislega heilsu og heilsu á sviði barneigna, uppfræðslu og þjónustu, til einkalífs að einhverju marki svo og til trúnaðar varðandi persónuupplýsingar sem þjónustuaðilum eru veittar.
5. Vitna ber í réttinn til frjálsrar hugsunar til að vernda rétt allra manna til aðgengis að uppfræðslu og upplýsingum sem tengjast kynferðislegri heilsu og heilsu á sviði barneigna laus undan hömlum á grundvelli hugsunar, samvisku og trúarbragða.
6. Vitna ber í réttinn til upplýsinga og uppfræðslu, til að vernda rétt allra manna til aðgengis að fullkomnum upplýsingum varðandi kosti, áhættuþætti og skilvirkni allra aðferða sem beitt er við stýringu frjósemi, til þess að allar ákvarðanir sem þeir taka í slíkum efnum verði teknar á grundvelli fulls, frjáls og upplýsts samþykkis.
7. Vitna ber í réttinn til vals um það hvort ganga skuli í hjónaband eða ekki og um réttinn til að stofna fjölskyldu og gera áætlanir um slíkt, í því skyni að vernda alla menn gegn hjúskap sem gengið er í án fulls, frjáls og upplýsts samþykkis beggja aðila.
8. Vitna ber í réttinn til að ákveða hvort eða hvenær eignast skuli börn til að vernda rétt allra manna til þjónustu varðandi heilsu á sviði barneigna þar sem boðnar eru fram sem allra víðtækastar aðferðir við stýringu frjósemi sem eru öruggar, skilvirkar og ásættanlegar auk þess að vera aðgengilegar, ódýrar, ásættanlegar og þægilegar í notkun.
9. Vitna ber í réttinn til heilsugæslu og heilsuverndar til að vernda rétt allra manna til bestu hugsanlegu gæða heilsugæslu og réttinn til að vera laus undan hefðbundnum aðferðum sem valda heilsutjóni.
10. Vitna ber í réttinn til afraksturs á sviði vísindaframfara til að vernda rétt allra manna til aðgengis að heilsutækni á sviði barneigna sem er fyrir hendi og sem óháðar rannsóknir hafa leitt í ljós að séu innan ramma ásættanlegra áhættu/hagnaðarviðmiða, og að bjóða slíka tækni ekki fram myndi hafa í för með sér tjón á heilsu og vellíðan.
11. Vitna ber í réttinn til fundafrelsis og stjórnmálaþátttöku til að vernda réttinn til að stofna félög sem miða að því að styrkja heilsu og réttindi á sviði kynferðis og barneigna.
12. Vitna ber í réttinn til að vera laus við pyntingar og illa meðferð til að vernda börn, konur og karla gegn öllum myndum kynferðislegs ofbeldis, arðnýtingar og misnotkunar.
ENSKA
In 1995, the International Planned Parenthood Federation and its 127 member associations approved a Charter on Sexual and Reproductive Rights, based on international human rights instruments. A summary follows:
1.The right to life should be invoked to protect women whose lives are currently endangered by pregnancy.
2.The right to liberty and security of the person should be invoked to protect women currently at risk from genital mutilation, or subject to forced pregnancy, sterilization or abortion.
3.The right to equality and to be free from all forms of discrimination should be invoked to protect the right of all people, regardless of race, colour, sex, sexual orientation, marital status, family position, age, language, religion, political or other opinion, national or social origin, property, birth or other status, to equal access to information, education and services related to development, and to sexual and reproductive health.
4.The right to privacy should be invoked to protect the right of all clients of sexual and reproductive health care information, education and services to a degree of privacy, and to confidentiality with regard to personal information given to service providers.
5.The right to freedom of thought should be invoked to protect the right of all persons to access to education and information related to their sexual and reproductive health free from restrictions on grounds of thought, conscience and religion.
6.The right to information and education should be invoked to protect the right of all persons to access to full information on the benefits, risks and effectiveness of all methods of fertility regulation, in order that any decisions they take on such matters are made with full, free and informed consent.
7.The right to choose whether or not to marry and to found and plan a family should be invoked to protect all persons against any marriage entered into without the full, free and informed consent of both partners.
8.The right to decide whether or when to have children should be invoked to protect the right of all persons to reproductive health care services which offer the widest possible range of safe, effective and acceptable methods of fertility regulation, and are accessible, affordable, acceptable and convenient to all users.
9.The right to health care and health protection should be invoked to protect the right of all persons to the highest possible quality of health care, and the right to be free from traditional practices which are harmful to health.
10.The right to the benefits of scientific progress should be invoked to protect the right of all persons to access to available reproductive health care technology which independent studies have shown to have an acceptable risk/benefit profile, and where to withhold such technology would have harmful effects on health and well-being.
11.The right to freedom of assembly and political participation should be invoked to protect the right to form an association which aims to promote sexual and reproductive health and rights.
12.The right to be free from torture and ill treatment should be invoked to protect children, women and men from all forms of sexual violence, exploitation and abuse