Lög FKB

1. gr.

1.1. Heiti samtakanna er Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir.

1.2. Aðsetur samtakanna er í Reykjavík Íslandi.

1.3. Samtökin gera ekki greinarmun á einstaklingum eftir þjóðerni þeirra, kyni, kynþætti, kynhneigð, trú, stétt, aldri, fötlun, hjúskaparstöðu eða stjórnmálaskoðunum. Þetta á við um allt starf samtakanna, þjónustu þeirra og tengda starfsemi. T.d. þegar fólk sækir um aðild að samtökunum eða leitar hjálpar hjá þeim.

1.4. Allur ágóði samtakanna, styrkir og eignir eiga eingöngu að vera notaðir til að vinna að markmiðum samtakanna (skv. annari grein þessarar stjórnaskrár).

1.5. Félagsmenn mega ekki notfæra sér samtökin í eigin ágóðaskyni, hvorki meðan þeir starfa í samtökunum, eftir að hafa lokið þar störfum eða eftir að samtök FKB hafa verið lögð niður.

1.6. Samtökin starfa ekki með fjárhagslegan ágóða í huga og ekki er heimilt að þau stjórnist af viðskiptahagsmunum.

1.7. Samtökin skulu leita eftir fjárhagsstuðningi til þess að geta unnið að markmiðum samtakanna með sem árangursríkustum hætti.


2. gr.

Meginmarkmið samtakanna er að efla réttindi og frelsi allra til að hafa val varðandi eigið kynlíf og barneignir. Hvetja til þess að þessi réttindi séu virt og stuðla að heilbrigðu kynlífi og tímabærum barneignum.

Leiðir að þessu markmiði eru:

  • Að stuðla að aðgengilegri og fjölbreyttri þjónustu á sviði fjölskylduáætlunar fyrir alla.
  • Að stuðla að hlutlausri fræðslu og ráðgjöf til allra um ábyrgt foreldrahlutverk, kynlíf, getnaðarvarnir og barneignir.
  • Að stuðla að ábyrgu kynlífi meðal ungs fólks með því að vinna að bættri kynfræðslu í skólum og fræðslu og ráðgjöf um fjölskylduáætlun þar sem það á við.
  • Að gefa út fræðsluefni og standa að námskeiðum fyrir fagfólk og almenning sem allir hafi jafnan aðgang að.
  • Að miðla upplýsingum/rannsóknarniðurstöðum (t.d. frá IPPF og WHO) um fjölskylduáætlun til aðildarfélaga, einstaklinga í samtökunum og annarra hliðstæðra aðila.
  • Að vera vakandi fyrir stöðu fjölskylduáætlunar og velferð foreldra í þjóðfélaginu og veita upplýsingar og aðstoð um þau málefni.
  • Að eiga samstarf við aðila, félög og stofnanir í þjóðfélaginu sem tengjast þessum málaflokki á sínum starfsvettvangi.
  • Að starfa með stjórnvöldum að bættu kynheilbrigði.
  • Að hvetja til rannsókna á sviði fjölskylduáætlunar.
  • Að taka þátt í norrænu, evrópsku og alþjóðlegu samstarfi félaga á þessu sérsviði. 
  • Að sjá til þess að öll fræðsla og aðstoð á vegum samtakanna grundvallist á upplýstu samþykki og sé án þvingana.


3. gr.

Samtökin mega, aðeins ef það styrkir tilgang þess og markmið:
  • Þiggja gjafir, styrki, framfærslu eða annan ágóða
  • Taka lán
  • Auglýsa eða stunda aðra starfsemi í fjáröflunarskyni
  • Sinna góðgerðarmálum
  • Ráða starfsfólk
  • Veita styrki til verkefna


4. gr.

Allir, einstaklingar, félög eða samtök eiga rétt á að sækja um aðild að samtökunum.

4.1. Einstaklingar, félög eða samtök sem óska eftir aðild að samtökunum skulu vera samþykk lögum þess og markmiðum.

4.2. Sækja skal um aðild á sérstökum eyðublöðum til stjórnar samtakanna. Með umsókn skulu fylgja lög viðkomandi félags eða samtaka.

4.3. Halda skal félagaskrá. Skrá yfir félagsmenn skal endurnýjuð á hverju ári. Er það hlutverk framkvæmdastjóra.

4.4. Einstaklingar, félög eða samtök sem gerast aðilar að samtökunum skulu greiða árgjald sem er ákveðið á aðalfundi samtakanna. Einstaklingar greiði einfalt árgjald, félög og samtök tvöfalt. Greiðslur árgjalds skal innheimt í byrjun starfsárs stjórnarinnar.

4.5. Stjórnin tekur ákvörðun um brottvísun úr samtökunum ef einstaklingur eða félög/samtök fara ekki eftir lögum þeirra og/eða vinna gegn markmiðunum.

4.6. Meðlimir hafa rétt og skyldur gagnvart samtökunum eins og tekið er fram í félagslögum og reglugerð eða samkvæmt samþykktum aðalfundar.

4.7. Meðlimir halda aðild sinni innan samtakanna svo lengi sem þeir borga félagsgjöldin nema brottvísun eða afsögn eigi sér stað.

4.8. Meðlimum sem er vísað úr samtökunum eiga rétt á því að flytja mál sitt fyrir stjórn áður en brottvísun er endanlega ákveðin.

4.9. Meðlimir hafa kosningarétt á aðalfundi samtakanna, svo fremi sem þeir hafa verið meðlimir í meira en þrjá mánuði og hafi greitt félagsgjöldin. Einstaklingar hafa eitt atkvæði en félög og samtök tvö atkvæði.

4.10. Starfsmenn samtakanna hafa ekki atkvæðisrétt þó þeir séu meðlimir.

4.11. Meðlimir hafa ekki atkvæðisrétt á aðalfundi samtakanna sem hafa möguleika á fjárhagslegum ávinningi.

4.12. Staðgenglar eða umboðsmenn atkvæða eru ekki leyfðir.

4.13. Á aðalfundi skal ákvarða skilyrði fyrir inntöku nýrra meðlima í samtökin.

4.14. Stjórnarmeðlimir eða meðlimir í samtökunum fá ekki greitt fyrir störf sín innan samtakanna.

4.15. Ekki er leyfilegt að veita meðlimum samtakanna lán úr sjóðum samtakanna.

4.16. Enginn meðlimur eða starfsmaður samtakanna má notfæra sér stöðu sína innan samtakanna til að auglýsa, framleiða eða selja þjónustu eða vörur til persónulegs ágóða eða sem gæti orðið til fjárhagslegs ávinnings fyrir maka þeirra eða ættingja.

4.17. Félagsgjöld eru ákvörðuð af stjórn samtakanna og þurfa að vera samþykkt á aðalfundi.

4.18. Ekki að leyfilegt að skipa ættingja sína eða maka í stöður innan samtakanna.


5. gr.

5.1. Stjórn samtakanna skipa sjö félagar, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjórnendur, eða þau embætti sem samtökin ákvarða hverju sinni.

5.2. Stjórn er kosin á aðalfundi samtakanna með meirihluta atkvæða frá fullgildum meðlimum sem mættir eru á aðalfundinn. Gæta skal þess að a.m.k. tveir stjórnarmeðlimir sitji áfram í næstu stjórn.

5.3. Hver stjórnarmeðlimur má aðeins hafa eitt sæti í stjórn hverju sinni.

5.4. Stjórnin skiptir með sér verkum.

5.5. Stjórnarseta er tvö ár nema viðkomandi gefi kost á sér aftur sem heimilt er í þrjú skipti í röð. Hámarks stjórnarseta er því 6 ár. Stjórnarmeðlimi má kjósa aftur eftir að hafa verið frá stjórnarstörfum í eitt kjörtímabil (2 ár).

5.6. Allir fullgidir meðlimir geta boðið sig fram til stjórnarsetu á aðalfundi.

5.7. Á aðalfundi skal ákvarðað hvernig kosning í stjórn fer fram.

5.8. Stjórnarmeðlimur getur sagt af sér og skal það vera skriflega til stjórnar og tekur gildi um leið og afsagnarbréf er afhent nema annað komi fram.

5.9. Vanti meðlim í stjórn mega stjórnarmeðlimir kjósa sér annan meðlim í það sæti stjórnar sem laust er. Sá stjórnarmeðlimur má sitja fram að næsta aðalfundi þar sem hann verður að vera samþykktur eða annar kosinn í hans stað.

5.10. Formaður er fundarstjóri á stjórnarfundum eða skipar annan í sinn stað.

5.11. Stjórnin heldur fundi svo oft sem þörf þykir en ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Einfaldan meirihluta þarf til að styðja allar ákvarðanir hennar.

5.12. Að a.m.k einn stjórnarmeðlimur sé yngri en 25 ára.

5.13.Að stuðlað sé að því að konur séu í a.m.k. helmingi embætta stjórnarinnar.

5.14. Stjórnin skal framkvæma og starfa eftir því sem ákvarðað er á aðalfundi.

5.15. Allir stjórnarmeðlimir og starfsfólk skulu undirrita yfirlýsingu þar sem fram kemur að ekki skuli verða hagsmunaárekstrar í starfi þeirra fyrir samtökin.

5.16. Stjórn má ráða og reka framkvæmdastjóra með samþykki aðalfundar.

Skylda stjórnarinnar er að:
  • Bera ábyrgð á starfsemi samtakanna sem og fjárhagi hennar.
  • Bera ábyrgð á samstarfi samtakanna við IPPF.
  • Samþykkja nýja meðlimi eða binda endi á aðild einstaklinga eða samtaka að félaginu.
  • Veita styrki eða neita.
  • Halda aðalfundi og skila ársskýrslu.
  • Vera til ráðgjafar fyrir framkvæmdastjóra og fara yfir og samþykkja eða yfirfara skýrslur og gögn frá framkvæmdastjóra og öðrum félögum.
  • Stjórn skal ákvarða hverjir skulu vera forsvarsmenn samtakanna á alþjóðlegum ráðstefnum eða fundum, þegar það á við.


6. gr.

6.1. Æðsta vald samtakanna hefur aðalfundur. Stjórn samtakanna fer með öll málefni þess milli aðalfunda.

6.2. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok marsmánaðar ár hvert og er hann opinn öllum meðlimum.

6.3. Til aðalfundar skal boða með bréfi til allra sem eru aðilar að samtökunum með minnst tveggja vikna fyrirvara þar sem kemur fram dagsetning, tími og staðsetning fundar.

6.4. Með fundarboði skal fylgja útdráttur úr ársskýrslu, niðurstaða ársreiknings, tillögur til lagabreytinga og önnur mál.

6.5. Veigamiklar tillögur svo og tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórninni með minnst þriggja vikna fyrirvara. Þær sem berast stjórn síðar skulu liggja frammi þar sem aðilar samtakanna geta kynnt sér þær.

6.6. Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirfarandi mál:
  • Skýrsla formanns um framkvæmdir á liðnu ári.
  • Skýrslur nefnda.
  • Endurskoðaðir reikningar fyrir liðið reikningsár.
  • Ákvörðun félagsgjalds.
  • Lagabreytingar.
  • Tillögur um framkvæmdar-og fjárhagsáætlun næsta reikningsárs.
  • Kosning; stjórn, nefndir og tveir endurskoðendur
  • Önnur mál.

Á aðalfundi skal:
  • Ákvarðað hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá að vera meðlimur samtakanna.
  • Ákvarða meðlimsgjald.
  • Samþykkja endurskoðendur.
  • Samþykkja ráðningu og starfssamning framkvæmdarstjóra.


7. gr.

7.1. Rétt til að sitja aðalfundi hafa fullgildir aðilar að samtökunum svo og félagsmenn félaga og samtaka.

7.2. Á aðalfundi hafa allir fundarmenn fullt málfrelsi og tillögurétt. Öll atkvæði eru jöfn.

7.3. Skráðir skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt. Einstaklingar hafa eitt atkvæði, félög og samtök hafa tvo fulltrúa og tvö atkvæði.

7.4. Verði kosning jöfn þá hefur fundarstjóri rétt til að greiða annað atkvæði eða tillagan sem kosið var um fellur niður.


8. gr.


8.1. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað og honum löglega framfylgt.

8.2. Á aðalfundi ræður meirihluti atkvæða úrslitum. Til breytinga á lögum samtakanna þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.

8.3. Formaður samtakanna skal vera fundarstjóri á aðalfundi. Ef formaður er ekki mættur 30 mínútum eftir að fundur á að hefjast á varaformaður að taka að sér fundarstjórn eða kjósa skal fundarstjóra á fundinum.

8.4. Ritari samtakanna skal skrá nöfn allra sem mæta á aðalfund.

8.5. Fundargerð skal gerð af ritara eftir hvern fund. Á þetta við um alla fundi samtakanna. Fundargerðum skal svo dreift á næsta fundi samtakanna og sé hún samþykkt skal formaður skrifa undir hana.

8.6. Boða má til auka aðalfundar ef stjórn telur það nauðsynlegt eða þegar a.m.k. fimm fullgildir meðlimir óska eftir aðalfundi skriflega til ritara. Í boði til aukaaðalfundar skal alltaf koma fram efni fundarins.


9. gr.

Fundi félagsmanna skal halda þegar stjórn félagsins telur þörf á eða þegar minnst fimm félagsmenn krefjast þess skriflega þar sem fram kemur hvers vegna þeir æskja fundar. Fundi félagsins skal boða með bréfi til allra aðildarfélaga og einstaklinga með tveggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundarins. Um rétt til fundarsetu svo og atkvæðisrétt gilda sömu reglur og í gr. 8.


10. gr.

Árlega skal gefa út skýrslu samtakanna og skal stjórnin senda hana til allra einstaklinga, félaga og samtaka sem eiga aðild að samtökunum.


11. gr.

Ákvörðun um slit samtakanna verður aðeins tekin á lögmætum aðalfundi eða aukafundi sem boðað hefur verið til í því skyni. Um boðun til slíks fundar, rétt til fundarsetu og atkvæðagreiðslu gilda sömu ákvæði og um aðalfundi. Til að slíta samtökunum þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Verði ákveðið að leggja niður samtökin skal eignum varið til málefna er varða markmið samtakanna. Tekur fundurinn nánar ákvarðanir um það.


12.gr.

Fjármál

12.1. Samtökin skulu ábyrgjast að:
  • Bókhald samtakanna fylgi samþykktum almennum reglum um fjármál og endurskoðun félagasamtaka
  • Fjármálum sé hagað samkvæmt lögum þeirra sem veita samtökunum fjárstyrk og fjárlögum landsins.

12.2. Endurskoðandi sé ráðinn eða samþykktur á aðalfundi samtakanna.

12.3. Fjármálin séu yfirfarin árlega af endurskoðanda og að endurskoðandi hafi rétt á að sitja á aðalfundi þar sem reikningar eru yfirfarnir og útskýra mál sitt sé þess þörf.

12.4. Bókhald skal geymt á aðalskrifstofu samtakanna og skal vera aðgengilegt öllum meðlimum samtakanna sem vilja skoða það.


13. gr.


Breytingar á lögum þessum voru unnar haustið 2007 og fram í mars 2008. Breytinga var þörf til að samræmast lögum IPPF. Matsfundur var haldinn með fulltrúum frá IPPF 2007 þar sem unnar voru breytingatillögur sem farið var eftir við gerð þessara laga.
Lög þessi verða lögð fyrir aðalfund til samþykkta 30 apríl 2008.

Skoðanakönnun

Eru getnaðarvarnir of dýrar?




Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir * postbox 886, 121 Reykjavík* fkb@fkb.is *sími: 8926456 * kt. 540793-2049